5 árum síðar...
17.05.2008 12:53:25 / 4a2002

Guantanamera

ég var að fara í gegnum gamlar myndbandsupptökur og mig langar svolítið að setja þær inn á netið, á síðu sem yrði harðlæst að sjálfsögðu. Ég fann upptöku af fallega bekknum okkar að syngja í G15. Langar fólk ekki annars að sjá? Ég myndi setja myndböndin hingað ef það væri hægt en þá þarf ég að setja þau fyrst á youtube og það vil ég ekki. Ég er bara búin að fara í gegnum nokkrar spólur og vonandi finn ég eitthvað meira.

Bubba

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.04.2008 14:16:57 / 4a2002

Hver man ekki eftir Jeff Lowe?

og af hverju koma svona margir inn á þessa síðu á hverjum degi?

Bubba

» 1 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 21:45:34 / 4a2002

Grill í sumar?

Mig minnir að í sumar hafi ég lofað tréverkinu mínu undir grillpartý þ.e.a.s. ef einhver vill :)

Endilega kommentið ef þið viljið hafa svoleiðis og þá líka hvort þið viljið bjóða í allsherjar árgangsdæmi eða bara A-bekkur :)

Hlakka til að heyra í ykkur

Hjördís


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.10.2007 15:42:52 / 4a2002

ippyt

Kann einhver að setja myndir hér? með færslu, á ég við.

 Knús, Bubba


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.08.2007 00:00:40 / 4a2002

Myndir :)

Sælt veri fólkið, ég var að setja myndir frá 16. júní helginni inn á myndasíðuna mína.

Njótið og hafið það gott elskurnar!

 Kveðja, Halla


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.06.2007 17:50:41 / 4a2002

Komnar inn myndir

 Hæ hæ

Ég var að klára að setja inn myndir, þær fóru óvart inn í vitlausri röð. Ég nenni ekki að laga það alveg strax

 

http://myndir.ekkert.is/hjordiselma/

 

Takk aftur fyrir skemmtilega helgi

Hjördís :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.06.2007 00:36:26 / 4a2002

óé

Langaði bara að segja takk fyrir helgina. Hefði ekki viljað missa af þessu. Þið eruð æði!

Knús,
Bubba


» 8 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 23:18:41 / 4a2002

Bekkjarpartýið 14. júní

A-partýið verður að sjálfsögðu haldið í Stekkjartúni 20, íbúð 303 þann 14. júní.

 Þeir sem vita ekki hvar húsið er og taka ekki sénsinn á að reyna að ramba á það geta skoðað "Partýkort" undir liðnum "Myndir" hérna á neðst á valmyndinni vinstra megin. 

Húsið og gatan er ennþá ómerkt, en þetta er nyrsta blokkin beint fyrir ofan kirkjugarðinn. Eins og er eru vinnupallar utan á stigahúsunum og venjulega er lítill gulur amerískur pallbíll merkur "Fjölnir" fyrir neðan húsið.

 Þetta er síðan vestari stigagangurinn (fjær Miðhúsabrautinni), og síðan efsta hæð vinstra megin. Ef þessar hárnákvæmu lýsingar duga ekki til að finna partýið og þið eruð orðin villt í nýja ofurkaos-hverfinu má alltaf skjóta upp neyðarblysi og hringja í Kára (868-7345).

Það er að sjálfsögðu öllum sem nokkurn tíma voru í umræddum 2.A, 3.A eða 4.A velkomið að mæta í partýið.

Stefnum á að byrja klukkan rúmlega 19.00 og hver mætir með fyrir sig á grillið, eða þá menn geta tekið sig saman. 

Það verður vonandi gaman að sjá ykkur :haha:

 

Kári 


» 17 hafa sagt sína skoðun

07.06.2007 08:46:54 / 4a2002

14. 15. og 16.

Ágæta samkunda....

Fresturinn til að borga og  skrá sig í óvissuferð árgangsins þann 15. júní er til 11. júni.

Verðið er 3600kr

og millifæra skal upphæðina á..

Kt. 090882-4149

0162-05-269643

Svo er hægt að kaupa miða á hátíðina þann 16. á http://bautinn.muna.is/ en það er líka hægt að kaupa miðana í Höllinni 15.og 16. júní á milli klukkan 13:00 og 17:00

 Það kostar hins vegar ekkert inn í partýið hjá mér þann 14......

 

Haldiði að allir A-arar viti af þessari síðu og þessari dagskrá? Hvernig er með Andreu, Hrafnkel, Kristjönu og Margréti Hlín?? Eruð þið þarna einhversstaðar úti??

 písát, Kári


» 8 hafa sagt sína skoðun

24.05.2007 19:32:47 / 4a2002

Frá árganssíðunni. Copy Paste by Ási :)

Nú er kominn tími til að endurlífga þessa síðu því nú eru bara rétt þrjár vikur í hátíðarhöldin!!! Þið sem enn kíkið hérna inn megið láta það ganga að kíkja hér inn því nú fara að koma mikilvægar upplýsingar 0 

 

 

14.júní – Bekkjarkvöld

-Mælum með því að hver bekkur hittist og geri eitthvað skemmtilegt saman

-Hver bekkur undirbúi bekkjareinkenni til að koma með í óvissuferðina (borða, kórónur, liti eða eitthvað slíkt) 

 

15.júní – Allur árgangurinn í óvissuferð!

-Mæting á MA plan kl.14:00. Mikilvægt að allir mæti tímanlega 0

-Verð 3600kr. Reikningsnúmer kemur fljótlega og þá má endilega byrja að borga!

-Matur skaffaður (kaffitími og kvöldmatur) en hver að koma með eigin drykki (og nóg af þeim 0)

-Endum á skemmtistað á Akureyri um kvöldið og áframhaldandi djamm fram á nótt 

 

 

16.júní – Stóra hátíðin í Höllinni með öllum afmælisárgöngum

-nákvæm tímasetning ekki komin

-miðapöntun á http://www.bautinn.is/ undir =>MA hátíð 

 

 

 

Karen í T-bekknum ætlar svo að sjá um að gera gjöfina fyrir skólann 0

 

 

 

Látið nú heyra í ykkur!! 0

 

 

Nefndin


» 16 hafa sagt sína skoðun

14.04.2007 14:45:10 / 4a2002

Árgangspartý 15. júní - Skoðanakönnun

Daginn daginn daginn daginn

 

Árgangspartýnefndin hefur stundað stíf fundahöld í reykmettuðum bakherbergjum en eftirfarandi upplýsingar hafa lekið út.

Fyrstu hugmyndir ganga út á það að hittast um klukkan 14:00 eða síðar og taka rútu eitthvert út í buskann þar sem verður mikið grín og mikið gaman. Að því loknu myndum við fá eitthvað fyrirtæki hér í bænum til að grilla kvöldmatinn ofan í okkur og síðan þegar fer að líða á kvöldið myndum við reyna að komast inn á einhvern skemmtistað, jafnvel með einkasamkvæmi eða álíka fram að miðnætti.

Nú vantar okkur hins vegar áætlaðan fjölda í þessa dagskrá og þess vegna væri ágætt ef sem flestir gætu gefið jákvætt eða neikvætt svar á hvort þeir séu líklegir til að mæta.

 

 

Ef það er svo stemming fyrir bekkjarpartýi þann 14. er ég meira en til í að halda það...... hmmmmm haaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaa

 Kári


» 36 hafa sagt sína skoðun

09.04.2007 19:10:47 / 4a2002

Andrea er komin í leitirnar

Hæ hæ

Ég vildi bara láta vita að ég er búin að finna hana Andreu okkar. Þetta var smá dekektív vinna í þessu, því ekki er stelpan okkar í símaskránni. Þannig að ég hoppaði inn á Íslendingabók og fann út hvað mamma hennar heitir (ég er flutt að heiman og tölvan mín er hrunin þannig að Karmínan var ekki á svæðinu) og síðan fann ég mömmu hennar í símaskránni. Hringdi þangað og fékk símann hennar Andreu litlu.

 

Hlakka til að sjá alla í sumar

Hjördís :lol:


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.04.2007 18:22:01 / 4a2002

Tjékk itt át

Gleðilega páska öll!

 

Skoðið þetta: http://www.borgarbyggd.is/frettir/nr/54392/

þá vitum við amk hvað Andrea er að gera þessa dagana...heyrði um þetta á RÚV í fréttunum

 

Einar 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 14:51:26 / 4a2002

færsla númer 8

Halla er duglegust að skrifa færslur

 

knús, Bubba


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 23:49:35 / 4a2002

Thule, bezt í heimi!!

  • Bjór er góður, rennur nú ljúft niður kverkar mínar
  • Hann verður enn betri þegar við munum djamma feitt í júní
  • Rauðvín er líka gott
  • ...líka hvítvín og rósavín
  • ...og...fullt meira
  • er meira að segja farin að fá mér whiskey...finnst ég rosalega fáguð núorðið, ekkert smá mikið fullorðins að fá sér whiskey :haha:
  • Kári vildi ekki fá sér whiskey með mér á Kaffi AK um daginn, ekki sátt, hann var bara í einhverju Captain Morgan rugli, iss, miklu kúlara að vera í whiskeyinu...no offense :haha:
  • já, ég er meðvituð um starfsemi SÁÁ...mun leita þangað ef í óefni stefnir

Hallan kveður...og já, það fylgir móðurstarfinu að fá sér stundum bjór ef manni leiðist einum heima...einhverra hluta vegna verður allt miklu skemmtilegra...reyni þó að einskorða það við helgar...í dag er fimmtudagur...mig minnir að það hafi verið talið til helga í denn...svo skrifar maður líka asskoti mörg orð á mínútu þegar maður fær sér nokkra öl...og ég þarf sko aldeilis á því að halda að losa um ritstíflu...er komin með ógeð á þessum skóla...alveg að verða búin, alveg að verða búin... :D Lov'ya

» 14 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
RSS tengill